Bók lesin af nýjum talgervli
24. apr. 2024
Fyrsta bókin sem gerð er aðgengileg í talgervils-tilraunaverkefni á Hljóðbókasafni Íslands í samvinnu við máltæknifyrirtækið Grammatek leit dagsins ljós á dögunum. Verkefnið miðar að þróun íslenskra talgervilslausna fyrir hljóðbækur og er markmiðið með því að auka framboð aðgengilegra bóka. Talgervillinn Gunnar sér um upplesturinn á bókinni „Depurð : afhverju líður okkur svona illa þegar við höfum það svona gott?“ Bókin er hljóðbók með texta og full virkni bókarinnar næst með því að fylgjast með textanum meðan hlustað er. Meira