Skoða bók

LÆK

Bergrún Íris Sævarsdóttir   Gunnar Helgason  

Bergrún Íris Sævarsdóttir   Gunnar Helgason  

03:58 klst.  

2024  

Sæskrímsli, uppvakningar, tröll, kolkrabbahamstur, fangamyndavél, ofurhetja og allskyns aðrar fígúrur búa innan um mannfólkið í Hafnarfirði – og lifna við í stórskemmtilegum, sprenghlægilegum, á stundum afar sorglegum en aðallega spennandi smásögum. Nemendur á mið- og unglingastigi í Hafnarfirði skrifuðu niður hugmyndir að söguþráðum, sögusviðum og nöfnum sögupersóna. Verðlaunahöfundarnir Gunnar Helgason og Bergrún Íris drógu svo úr hugmyndunum og það var alveg sama hversu klikkaðar, skrítnar eða ótrúlegar hugmyndirnar voru, þau URÐU að nota þær. Þannig að sögurnar eru skrifaðar af Gunna, Bergrúnu og krökkunum í Hafnarfirði. Útkoman er ein hressilegasta bók sem út hefur komið! Hér skrifa Gunnar Helgason og Bergrún Íris níu sögur hvort.  

Barnabækur Hafnarfjörður Íslenskar barna- og unglingabækur