Skoða bók

Effí Briest

Fontane, Theodor  

Arthúr Björgvin Bollason  

Rósa Guðný Þórsdóttir  

13:11 klst.  

2023  

Skáldsagan Effí Briest eftir Theodor Fontane er eitt af frægustu stórvirkjum þýskra bókmennta. Sagan fjallar um unga og lífsglaða stúlku sem verður fyrir barðinu á því þrúgandi og kvenfjandsamlega siðferði sem var við lýði í Prússaveldi á 19. öld. Fontane veitir lesendum sínum ekki aðeins djúpa innsýn í sálarlíf hinnar ungu og heillandi aðalpersónu sögunnar, helgdur dregur hann jafnframt upp mjög áhugaverða mynd af þýsku samfélagi í lok 19. aldar. Skáldsaga Fontanes hefur verið þýdd á fjölda tungumála og notið hylli lesenda víða um heim. Það er til marks um vinsældir sögunnar um Effí Briest að eftir henni hafa verið gerðar fimm kvikmyndir. Þetta er sígild og hrífandi saga, með skýrum ádeilubroddi og tregablöndnum undirtón. Til marks um vægi sögunnar má nefna að henni hefur verið skipað á bekk með Frú Bovary eftir Gustave Flaubert og Önnu Kareninu eftir Leo Tolstoj.  

19 öld Kvikmyndaðar bækur Skáldsögur Sígilt efni Þýskar bókmenntir Þýðingar úr þýsku